Eins og Egill var svo góður að benda á þá hef ég verið að leika mér að reyna að koma á framfæri staðreyndum um hvalveiðar íslendinga á nokkrum stöðum á veraldarvefnum. Í þeirri tilraun minni rakst ég á mjög skemmtileg mistök sem umhverfisverdunarsamtökunum Greenpeace gerðu í júní á þessu ári. Afrita bara textann beint héðan:
The environmental activist group Greenpeace wanted to be prepared to counter President Bush's visit last week to Pennsylvania to promote his nuclear energy policy.
"This volatile and dangerous source of energy" is no answer to the country's energy needs, shouted a Greenpeace fact sheet, decrying the "threat" posed by the reactors Bush visited in Limerick. But after that assertion, the Greenpeace authors were apparently stumped while searching for the ideal menacing metaphor.
"In the twenty years since the Chernobyl tragedy, the world's worst nuclear accident, there have been nearly [FILL IN ALARMIST AND ARMAGEDDONIST FACTOID HERE]," the sheet said.
The Greenpeace spokesman who issued the memo, Steve Smith, told the Web site that a colleague was making a joke in a draft that was then mistakenly released.
The final version did not mention Armageddon; instead it warned of plane crashes and reactor meltdowns.
Yes, sörrí... hvorki meira né minni... Ég allavegana hló allavegana innra mér við þennan lestur...
28. október 2006 klukkan 04:46
Sigurđur Ari Sigurjónsson 3 athugasemdir
Í tilefni af því að við vorum að hefja hvalveiðar svona fyrir alvöru þá varð ég að benda á wikipedia síðuna sem fjallar um hvalveiðar. Þar er ákaflega góð og hlutlaus umfjöllun um viðfangsefnið og það skoðað frá öllum hliðum. Fróðleg lesning fyrir hvern þann sem hefur áhuga á þessu efni...
20. október 2006 klukkan 02:43
Sigurđur Ari Sigurjónsson 2 athugasemdir
Alltaf gaman að vera að stefna í rétta átt með meistaraverkefnið. Ég er ekki að segja að ég sjái eitthvað fyrir endann á því strax, en vonir glæðast allavegana um að þetta klárast fyrir aðfangadag. Til þess að það takist þarf samt að vera meiri agi á okkur heldur en núna kannski. Gott dæmi um strangan aga hjá okkur var einmitt dagurinn í dag þar sem að ég vaknaði kl. 12 í morgun (og var mættur í skólann 10 mín síðar) en við áttum að mæta á fund upp í skóla kl. 13:30. Hittum leiðbeinandann okkar þar sem var bara sáttur við störf okkar, enda ekki við nokkru öðru að búast! Erfitt að vakna svona snemma samt...
Annars sér maður fram á kreisí laugardag, boðinn í þrjú samkvæmi, þar af 1 pólska "Chocolate block" veislu og 2 afmæli sem eru nákvæmlega í sitthvorum endanum af bænum. Veit annars ekkert hvað þessi súkkulaðiblokk er en ég held ég verði allavegana að mæta í það til að tjékka á því!
Og svo verð ég að minnast á eina af bestu þáttaröðum sem ég hef séð í sjónvarpi hingað til. Þættirnir heita heroes og eru 5 þættir búnir af þessum þáttum og ég get ekki beðið eftir að sjá næsta þátt. Þeir ná að búa til nokkuð skemmtilega spennu á milli þátta án þess að rembast of mikið við það sem gerir þá mjög athyglisverða (á góðan hátt, Egill). Algjörir must see þættir!!
20. október 2006 klukkan 02:38
Sigurđur Ari Sigurjónsson 3 athugasemdir
Jæja, núna hafa 2 ráðherrar nýju hægri ríkisstjórnarinnar hér í Svíaríki sagt af sér. Annar þeirra notaði skattaskjól til að kaupa sér hús og sleppa við fasteignaskatt á meðan hinn borgaði ekki afnotagjöld af ríkisfjölmiðlunum í 16 ár. Báðar borguðu svo barnfóstrunum sínum svart. Einnig hefur hitnað undir tveimur öðrum, annar borgaði ekki afnotgjöld í 10 ár á meðan hinn vantaldi í kringum milljón íslenskra til skatts (fyrir misskilning að hans sögn) fyrir nokkrum árum.
Ef maður skoðar þetta á íslenskan mælikvarða þá væru þetta nú ekki beint álitnir einhverjir stór glæpir og ekki nokkur þingmaður og hvað þá ráðherra mundi segja af sér fyrir að hafa óvart gleymt því að borga afnotagjöld í nokkur ár. Eini þingmaðurinn á seinustu árum sem þurfti að segja af sér varð sekur um margmilljóna króna fjárdrátt og dæmdur í nokkra ára fangelsi. Og auðvitað er honum fyrirgefið eins og skot og er hann nú mættur fremstur í flokk þeirra sem ætla að reyna að komast á þing í næstu þingkosningum. Það er náttla ekkert mál að hleypa honum þangað aftur, maðurinn lenti nú bara óvart í því að fá smá gefins hluti og datt ekki til hugar að þetta væri eitthvað rangt. Honum hlýtur að vera fyllilega treystandi, er þakki???
17. október 2006 klukkan 19:24
Sigurđur Ari Sigurjónsson Engin athugasemd